Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):
Forseti vill upplýsa að á fundi með þingflokksformönnum var gengið frá því að það yrði kvöldfundur bæði í kvöld og annað kvöld. Forseti vill enn fremur upplýsa að í því máli sem nú er til umfjöllunar eru tveir hv. þm. á mælendaskrá. Það er ásetningur forseta að ljúka tveimur næstu málum enda gefið í skyn á fundum þingflokksformanna að þingfundur gæti staðið fram undir miðnætti.