Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 04. apríl 2002, kl. 11:06:00 (6898)

2002-04-04 11:06:00# 127. lþ. 109.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, iðnrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 127. lþ.

[11:06]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég greiði að sjálfsögðu atkvæði gegn því að vísa þessu máli frá. Kárahnjúkavirkjun er stór og metnaðarfull framkvæmd. Við Íslendingar erum ekki óvanir því að hugsa stórt og m.a. þess vegna búum við við velsæld í þessu landi. Ég er þakklát fyrir þann mikla stuðning sem þessi framkvæmd við Kárahnjúka fær á hv. Alþingi og í samfélaginu almennt.