Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Stuðningur minn við virkjun við Kárahnjúka hefur ávallt verið skilyrtur við það að tryggt væri að orkan frá Kárahnjúkavirkjun yrði nýtt til atvinnuuppbyggingar á Austurlandi. Nú er það mál allt í uppnámi. Meðan svo er mun ég ekki greiða þessu máli atkvæði og tek þá afstöðu að sitja hjá.