Tollalög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 11:43:57 (7074)

2002-04-08 11:43:57# 127. lþ. 114.21 fundur 576. mál: #A tollalög# (tollar á grænmeti) frv. 46/2002, Frsm. DrH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[11:43]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1022 um frv. til laga um breytingu á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum, frá hv. landbn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn fólk frá landbrn., Samtökum atvinnulífsins, BSRB, Alþýðusambandi Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu og frá Bændasamtökum Íslands.

Með frumvarpinu er lögð til breyting á 6. gr. A í tollalögum þannig að landbúnaðarráðherra hafi meira svigrúm við ákvörðun um tollvernd þeirra vara sem tilgreindar eru í viðaukum IVA og B við lögin. Samkvæmt gildandi lögum er landbúnaðarráðherra bundinn breytingu á tolli í 25%-þrepum en í því felst að ráðherra getur lækkað eða hækkað tollinn þannig að hann nemi 0, 25, 50 eða 75% af verð- eða magntolli sem tilgreindur er í tollskrá. Eftir breytingarnar mun ráðherra hafa meira svigrúm þannig að hann getur breytt tolli í 10%- þrepum, frá 0 til 90%.

Nefndin vekur athygli á því að í greinargerð með frumvarpinu er aðeins rætt um aukið svigrúm ráðherra til að ákveða tollvernd grænmetis en lagalega séð eru breytingarnar víð tækari en svo. Þær vörur sem viðaukar IVA og B ná til eru m.a. kjöt, mjólk og mjólkurvörur, smjör, ostur, egg, lifandi eða afskorin blóm og plöntur, grænmeti o.fl.

Nefndin telur þessar breytingar vera til verulegra bóta og vonast til að þær leiði til minni tollverndar en verið hefur þannig að íslenskir neytendur geti notið þess í lækkuðu matvælaverði.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Guðjón A. Kristjánsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Jónína Bjartmarz var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Þuríður Backman ritar undir álitið með fyrirvara.

Undir nál. þetta rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þm. Sigríður Jóhannesdóttir, Guðjón Guðmundsson, Karl V. Matthíasson, Einar Oddur Kristjánsson, Sigríður Ingvarsdóttir og Kristinn H. Gunnarsson og Þuríður Backman, með fyrirvara.