Þátttaka seðlabankastjóra í álversviðræðum

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 15:24:12 (7120)

2002-04-08 15:24:12# 127. lþ. 114.1 fundur 482#B Þátttaka seðlabankastjóra í álversviðræðum# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[15:24]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Hér stóð í ræðustóli formaður BSRB, þingmaðurinn Ögmundur Jónasson. Hverjum ferst að tala um að pólitík eigi ekki að koma við sögu þar sem teknar eru ákvarðanir? Ég held að ef einhver hefur blandað saman pólitískum afskiptum og afskiptum af því tagi að vera formaður BSRB sé það hv. þm. sem hér mælti og fórst það ekki vel.