Landbrh. (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég álít það eitt af hlutverkum mínum sem alþingismanns að vinna með framtíðinni en ekki gegn henni. Ég vil styrkja atvinnulíf Íslendinga. Á síðustu sjö árum hefur, oft í andróðri í þinginu, tekist að skapa þann grundvöll að 15--20 þús. störf hafa orðið til í landinu. Atvinnuleysi er vart til lengur.
Vinir mínir í Vinstri grænum eru mér áttaviti hvert ég á að fara. Þess vegna segi ég já í þessu máli.