Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti vill láta þess getið að ráðgerðar eru tvær umræður utan dagskrár í dag. Hin fyrri verður kl. 12.30 og er um verðlagsmál. Málshefjandi er hv. þm. Viljálmur Egilsson. Hæstv. forsrh. verður til andsvara.
Hin síðari hefst um kl. hálftvö, að loknu hádegishléi, og er um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Málshefjandi er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir. Hæstv. félmrh. verður til andsvara.