Jón Bjarnason (andsvar):
Hæstv. forsrh. veit að þegar manni er trúað fyrir að taka ákvarðanir á grundvelli forsendna sem manni er skylt að byggja á þá tekur maður þær ákvarðanirnar og ber ábyrgð á þeim. Það eigum við að gera í hvaða starfi sem við erum, hvort við erum forsætisráðherrar, skólastjórar, sjómenn, verkamenn eða bændur. Þá öxlum við ábyrgð á starfi okkar.