2002-04-30 01:07:23# 127. lþ. 132.24 fundur 710. mál: #A húsnæðismál# (félagslegar íbúðir) frv. 86/2002, Frsm. ArnbS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur, 127. lþ.

[25:07]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum. Nál. þetta er frá félmn.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hermann Sæmundsson og Inga Val Jóhannsson frá félmrn., Þórð Skúlason og Gunnlaug Júlíusson frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, Guðmund Bjarnason frá Íbúðalánasjóði, Guðrúnu Árnadóttur frá Reykjavíkurborg, Gunnar Jónatansson frá Búseta og Baldvin Ólason frá Félagsstofnun stúdenta.

Með frv. er lagt til að í stað varasjóðs verði komið á fót varasjóði húsnæðismála sem verði í eigu og á ábyrgð sveitarfélaga en verði rekinn sem sjálfstæð rekstrareining undir yfirumsýslu félmrh. Varasjóður húsnæðismála yfirtekur allar eignir, réttindi og skyldur varasjóðs, skv. X. kafla laganna um varasjóð og ákvæði til bráðabirgða VIII, sem er lagður niður. Þá skal varasjóður húsnæðismála hafa umsýslu með Tryggingarsjóði vegna byggingargalla þar til hlutverki hans telst lokið skv. 53. gr. laganna. Jafnframt er varasjóði húsnæðismála ætlað að veita annars vegar rekstrarframlög til sveitarfélaga vegna hallareksturs félagslegra leiguíbúða eða íbúða sem staðið hafa lengi auðar og hins vegar framlög til sveitarfélaga til að greiða fyrir innlausn félagslegra eignar- og leiguíbúða og sölu þeirra á almennum markaði. Í frv. er enn fremur mælt fyrir um hlutverk ráðgjafarnefndar varasjóðs húsnæðismála en nefndin skal skipuð með líkum hætti og núverandi stjórn varasjóðs. Þá hefur frv. að geyma heimild til stjórnar Íbúðalánasjóðs að fengnum tillögum varasjóðs húsnæðismála og í samráði við viðkomandi sveitarfélög til að afskrifa að hluta eða öllu leyti útistandandi veðkröfur sjóðsins á félagslegri leiguíbúð sem ekki verður leigð út vegna slæms ástands, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Loks er í frv. gert ráð fyrir að félmrh. verði heimilt að staðfesta ósk sveitarfélags um að aflétt verði kaupskyldu og forkaupsrétti félagslegra íbúða innan viðkomandi sveitarfélags.

Nefndin telur rétt að samkomulag félmrh. og fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands ísl. sveitarfélaga frá 4. apríl 2002 fylgi áliti þessu til frekari skýringa á frv.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Breytingarnar eru allar smávægilegar og lúta annars vegar að orðalagi og hins vegar að tilvísunum í lagagreinar.

Undir nál. skrifa hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, Magnús Stefánsson, Kristján Pálsson, Drífa Hjartardóttir, Jónína Bjartmarz, Pétur H. Blöndal með fyrirvara, Ásta R. Jóhannesdóttir með fyrirvara og Steingrímur J. Sigfússon með fyrirvara.

Hæstv. forseti. Hvað varðar það hlutverk varasjóðs að veita framlög til sveitarfélaga vegna sölu þeirra á félagslegum eignar- og leiguíbúðum á almennum markaði skal tekið fram að bent hefur verið á að verulegur ójöfnuður getur orðið við greiðslu framlaganna og hann staðið m.a. að mismunandi eignarhlut sveitarfélaganna í íbúðunum.

Samkvæmt frv. ber ráðherra að setja reglur um nánari framkvæmd við veitingu framlaganna þar sem hún færist til ráðgjafarnefndar varasjóðs húsnæðismála. Við teljum fulla ástæðu til að nýta tækifærið sem nú skapast og skoða þetta mál frekar með það að markmiði að leiðrétta þann mismun sem þarna getur myndast.