Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Það er óhjákvæmilegt að vekja á því athygli að hér er niðurfærsluleið á fullri ferð. Hér er verið að færa niður tölur í gildandi vegáætlun um 2 milljarða kr. sem er afleiðing niðurskurðar þessarar ríkisstjórnar á framlögum til vegamála við afgreiðslu fjárlaga í desember sl. Þetta er hugur ríkisstjórnarinnar til vegamálanna í landinu hvað sem öllum fögrum fyrirheitum líður.