![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka fyrir mjög ákveðið svar hjá hv. þm. um að það sé einhugur og sá skilningur á þessu ákvæði að endurskoðun skuli lokið, eins og hann segir, í ágúst á þessu ári þannig að þingið geti þá unnið í framhaldi af þeirri endurskoðun og endurskoðað þá hluti eftir því sem þörf er á.
Það var mjög mikilvægt að fá alveg klárt fram að þetta er það sem skal gera og ekkert annað.