Aukinn réttur foreldra vegna veikinda barna

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 23:59:04 (8745)

2002-05-02 23:59:04# 127. lþ. 135.37 fundur 239. mál: #A aukinn réttur foreldra vegna veikinda barna# þál. 37/127, Frsm. JBjart (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[23:59]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti hv. heilbr.- og trn. um till. til þál. um aukinn rétt foreldra vegna veikinda barna.

Nefndin tekur undir efni tillögugreinarinnar en gerir fáeinar athugasemdir við atriði sem fram koma í greinargerð með tillögunni. Með lögum nr. 95/2000 var foreldrum tryggður réttur til töku foreldraorlofs vegna veikinda barna og þar með lögfest helstu efnisatriði í tilskipun Evrópusambandsins frá 3. júní 1996, um rammasamning um foreldraorlof. Lögin tryggja einnig að réttur foreldris samkvæmt ráðningarsamningi raskist ekki vegna töku foreldraorlofs. Skoða verður greinargerð tillögunnar með hliðsjón af þessu.

Nefndin telur óhjákvæmilegt að breyta orðalagi 1. málsliðar tillögugreinarinnar. Málsliðinn má skilja þannig að nefndinni, sem slíkri, sé beinlínis ætlað að tryggja betur rétt foreldra samkvæmt tillögunni. Slíkar valdheimildir verða ekki veittar með ályktun Alþingis einni saman, enda ljóst af samhenginu að nefndinni er einungis ætlað að gera tillögur um leiðir til að tryggja rétt foreldra til launa í fjarveru úr vinnu vegna veikinda barna. Því leggur nefndin til þá orðalagsbreytingu sem greind er í nál.

Undir nál. þetta rita auk frsm. hv. þm. Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Ásta R. Jóhannesdóttir, Margrét Frímannsdóttir og Þuríður Backman en aðrir nefndarmenn í heilbrn. voru fjarstaddir við afgreiðslu málsins.