2002-05-03 00:12:00# 127. lþ. 135.31 fundur 54. mál: #A virkjun Hvalár í Ófeigsfirði# þál. 33/127, GAK
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[24:12]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kem í ræðustól til að lýsa stuðningi við þessa tillögu. Ég fagna því mjög að hún skyldi fá framgang í þinginu. Ég tel að það verði til farsældar fyrir land og þjóð og einkum þó fyrir Vestfirðingana að farið verði í að kortleggja þá virkjunarmöguleika sem þarna eru. Vonandi mun það leiða til þess að menn sjái að þarna er hagkvæmur og góður virkjunarkostur sem verði nýttur fyrr en seinna.