Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Af því að hv. 7. þm. Reykv. talaði allmikið um þorskeldið verð ég að minna hann á að þingið tók fyrir fáeinum dögum afstöðu til tillögu í frv. til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða þar sem kveðið er á um að til ráðstöfunar skuli vera 500 tonn af óslægðum þorski, það er rétt að taka fram að það er óslægður þorskur, sem ráðstafað skuli til tilrauna með áframeldi á þorski í samræmi við Hafrannsóknastofnun sem fylgist með tilrauninni og birti niðurstöður um gang hennar.
Í nefndaráliti er sérstaklega vikið að því og vakin á því athygli að þegar hafi verið tekið til við þorskeldi, einkum á Vestfjörðum og í Eyjafirði, og þessi heimild sé veitt til þess að greiða fyrir þeirri atvinnustarfsemi. Í raun er Alþingi komið töluvert lengra í þessu máli vegna þess að við höfum tekið efnislega afstöðu til þess.
Ég tók því miður ekki eftir því hvernig hv. þm. greiddi atkvæði í þessum efnum en ég geri ráð fyrir að hv. þm. hafi stutt hina ágætu viðleitni okkar stjórnarliða.