Umfang skattsvika, skattsniðganga og dulin efnahagsstarfsemi

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 15:24:11 (8830)

2002-05-03 15:24:11# 127. lþ. 137.27 fundur 186. mál: #A umfang skattsvika, skattsniðganga og dulin efnahagsstarfsemi# þál. 39/127, Frsm. VE (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[15:24]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Efh.- og viðskn. gerir tillögu um það að þessi þáltill. verði samþykkt með tveim breytingum. Annars vegar er sú breyting lögð til að reynt verði að kanna umfang skattsvika og skattsniðgöngu eftir landsvæðum og í annan stað að verklok verði fyrir 1. júlí 2003.