Fyrirkomulag ökuprófa

Mánudaginn 08. október 2001, kl. 15:30:09 (180)

2001-10-08 15:30:09# 127. lþ. 5.1 fundur 44#B fyrirkomulag ökuprófa# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 127. lþ.

[15:30]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég vil upplýsa hv. þm. um að þetta breytta fyrirkomulag, þessar hugmyndir um breytingu, eru ekki nýjar af nálinni og hafa verið ræddar innan Umferðarráðs oft áður. Ég tel því að fullljóst sé að menn telji að við getum fengið mun betri framkvæmd ökuprófa út úr þessu fyrirkomulagi. En það er að sjálfsögðu svo að fylgjast verður mjög nákvæmlega með því hvernig til tekst.