Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Hv. þm. spyr hvað líði hinni sérstöku úttekt sem þingmaðurinn vék hér að og sérstök þál. var samþykkt um á sl. vori. Um þetta er það að segja að þessi úttekt er hafin. Henni lýkur vonandi fljótlega og þá verður unnt að greina efnislega frá niðurstöðum hennar.