Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varaþm. á lista Framsfl. í Austurl., Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``
Jónas Hallgrímsson hefur tekið sæti á Alþingi áður og er boðinn velkominn til starfa á ný.