Jón Bjarnason:
Herra forseti. Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs styðjum eindregið þetta frv. og vonum jafnframt heitt og innilega að til þess þurfi ekki að koma að grípa þurfi til þessarar ábyrgðar. Við vonum líka að sem allra fyrst komist á sá friður og það öryggi í heiminum að hægt sé að fella þessa ábyrgð niður.
Herra forseti. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs styður frv. einhuga.