Leigubifreiðar

Fimmtudaginn 01. nóvember 2001, kl. 13:31:19 (1012)

2001-11-01 13:31:19# 127. lþ. 19.3 fundur 167. mál: #A leigubifreiðar# (heildarlög) frv., samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 127. lþ.

[13:31]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. um leigubifreiðar.

Með frv. er verið að laga lög um leigubifreiðar að breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu. Þetta á ekki hvað síst um auknar kröfur sem gerðar verða til starfsstéttarinnar í heild um aukið öryggi. Þá er lagt til að aðlaga málaflokkinn að nútímastjórnsýsluháttum til að auka réttaröryggi borgaranna.

Öll ákvæði gildandi laga um sendi- og vörubifreiðar eru felld burt í þessu nýja frv. þar sem þau heyra nú undir nýsamþykkt lög um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi, nr. 73/2001. Þá færist stjórnsýsla málaflokksins og öll umsýsla leigubifreiðamála til Vegagerðarinnar. Það er í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til stjórnsýslunnar, þ.e. að framkvæmd laganna sé í höndum stofnana og ákvarðanir síðan kæranlegar til ráðuneytis sem æðra setts stjórnvalds.

Á höfuðborgarsvæðinu hefur útgáfa akstursleyfa verið í höndum þriggja stéttarfélaga leigubifreiðastjóra. Ráðuneytið telur það fyrirkomulag ekki hafa gefist vel að öllu leyti þar sem erfitt hefur verið að tryggja samræmda framkvæmd félaganna. Vegagerðin mun því, ef frv. verður að lögum, sjá um útgáfu allra atvinnuleyfa og skírteina fyrir afleysingabílstjóra og hafa umsjón með námskeiðum. Auk þess mun Vegagerðin starfrækja gagnagrunn með samræmdum upplýsingum til að umsýsla og skipulag verði einfalt og skilvirkt.

Gert er ráð fyrir að aðgangur að grunnupplýsingum gagnagrunnsins verði mjög takmarkaður og í fullu samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Þá mun Vegagerðin sjá um leyfisveitingar og eftirlit með bifreiðastöðvum, en frv. gerir ráð fyrir mjög aukinni ábyrgð þeirra.

Með frv. er einnig kynnt sú nýlunda að setja megi lágmarksgæðastaðla fyrir þjónustu leigubifreiða. Stöðvarnar hafa gert mismunandi kröfur og engir almennir staðlar hafa verið til. Er stefnt að því að auka gæði þjónustunnar sem ætti, ef vel tekst til, að koma öllum almenningi til góða, en mun ekki hvað síst bæta ímynd íslenskrar ferðaþjónustu. Það skal þó tekið skýrt fram að um heimildarákvæði er að ræða.

Í frv. er gert ráð fyrir þyngri viðurlögum en í gildandi lögum. Með því er lögð áhersla á aukna ábyrgð og eftirlit bifreiðastöðva með því að reglum sé fylgt, svo og aukinni ábyrgð einstakra leyfishafa.

Samkvæmt gildandi lögum eru kærumál hjá umsjónarnefnd fólksbifreiða á fjórum stöðum á landinu. Úrskurðirnir eru kæranlegir til samgrn. Með hinu nýja fyrirkomulagi verður umsýsla og framkvæmd laganna í höndum Vegagerðarinnar en ákvarðanir hennar kæranlegar til ráðuneytisins í samræmi við stjórnsýslulög, nr. 37/1993.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgn.