Leigubifreiðar

Fimmtudaginn 01. nóvember 2001, kl. 15:00:44 (1029)

2001-11-01 15:00:44# 127. lþ. 19.3 fundur 167. mál: #A leigubifreiðar# (heildarlög) frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 127. lþ.

[15:00]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Vegna spurningarinnar um hvort hafa mætti þennan kostnað mismunandi eftir því hversu stór takmörkunarsvæðin eru, þ.e. svæðin sem verið er að úthluta leyfum til, þá er um það að ræða eins og hefur komið fram að þetta er kostnaður við tiltölulega miðstýrt kerfi hjá Vegagerðinni og á ekkert skylt við íbúafjölda. Þetta á skylt við eftirlit, umsýslu og umsjón með heila hópnum. Það verður að líta á þetta í því ljósi.