Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Ég var ekki endilega að segja að þetta væri flókið í útfærslu. Ég hef svo sem ekki pælt þannig í því. Ég er einfaldlega að nefna það sem mér fannst augljóst í þessu samhengi, að þessi hugsun mundi strax stranda á títtnefndum dómi frá því í desember 1998. Hvort það var síðan rangur misskilningur, ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara svona fullyrðingu. Kannski er best að ég sofi svolítið á því.