Vilhjálmur Egilsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tel að þær forsendur sem hv. þm. hefur fyrir því að standa gegn sölu Rafveitu Sauðárkróks til Rariks séu ekki endilega þær sömu og mínar forsendur en ég er hins vegar algjörlega sammála honum um efni málsins þótt á öðrum forsendum sé en hann hefur verið að rekja hér.