![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég heyrði þessa fullyrðingu hv. þm. Sigríðar Jóhannesdóttur áðan á þessum þingfundi. En það var hennar fullyrðing en ekki menntmrh. Ég heyrði ekki að menntmrh. tæki undir það að hér væri um að ræða réttan skilning á málinu. Ég þekki ekki þetta mál þannig að ég get engu um það svarað. En það er auðvitað sjálfsagt að kynna sér það.