Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs styður þetta aukna framlag til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins en við teljum þessa aukningu engan veginn nægja. Við höfum kynnt okkur málefni Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar, sem sinnir mjög mikilvægu þjónustuhlutverki fyrir fötluð börn og aðstandendur fatlaðra barna, og það sætir furðu hvers vegna þeirri stofnun hefur verið haldið í því fjársvelti sem raun ber vitni.