Sigríður A. Þórðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Það er afar auðvelt að færa rök fyrir því. Með því að bera saman hver gjöldin voru 1991 og 1992 og hver þau eru síðan í dag, er mjög auðvelt að sjá hvernig verðlagsþróunin er á þessu tímabili og uppfæra gjöldin. Það var ég fyrst og fremst að styðja rökum og það er mjög auðvelt reikningsdæmi.