2001-12-14 00:59:02# 127. lþ. 54.7 fundur 282. mál: #A fólksflutningar, vöruflutningar og efnisflutningar á landi# (gjald fyrir rekstrarleyfi) frv. 153/2001, Frsm. minni hluta KLM
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 127. lþ.

[24:59]

Frsm. minni hluta samgn. (Kristján L. Möller):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutaáliti samgn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi. Auk mín eru á þessu nál. hv. þingmenn Lúðvík Bergvinsson og Jón Bjarnason.

Nefndarálitið er svohljóðandi:

Lög nr. 73/2001 voru samþykkt á síðasta þingi og var gjald fyrir almennt rekstrarleyfi til að stunda fólksflutninga þá ákveðið 3.000 kr. Í frv. er lagt til að hækka gjaldið úr 3.000 kr. í 10.000 kr. af því að um mistök hafi verið að ræða á síðasta þingi, eins og sagt var við fyrstu umræðu málsins. Gjaldið hafi með öðrum orðum átt að verða 10.000 kr. þegar frv. var samþykkt í fyrra.

Í breytingartillögum meiri hlutans er í fyrsta lagi lagt til að árlegt rekstrarleyfi verði áfram óbreytt en að skoðunargjaldið hækki úr 1.000 kr. í 1.400 kr. Með þessari breytingu verður heildarskatturinn samt sem áður sá sami, um 11 millj. kr. Skattheimtan minnkar ekki heldur er henni breytt. Í öðru lagi er í breytingartillögunum tekið á skólabifreiðamálum og eru þær breytingar til bóta að mati minni hlutans.

Minni hlutinn vekur athygli á því að innheimtukostnaður af 1.000 kr. árgjaldinu var 200 kr. í hvert skipti eða um 1,2 millj. kr. á ári og hækkar þetta heildarkostnað vegna umsýslu við málaflokkinn úr 11,3 millj. kr. í 12,5 millj. kr. Fram kom í umfjöllun nefndarinnar að innheimtukostnaður yrði hinn sami þótt gjaldið hækkaði.

Samkvæmt lauslegri áætlun minni hlutans hafa að frumkvæði samgrn. verið lagðir á nýir skattar upp á um 56--60 millj. kr. á ýmiss konar samgöngustarfsemi nú á síðustu missirum, svo sem: flugleiðsögugjald, stundum kallaður flugmiðaskattur, um 35--45 millj. kr., leigubifreiðagjald eða leigubifreiðaskattur, um 10 milljónir, og svo þessi skattur hér á fólks-, vöru- og sendiferðabíla sem mun skila um 11--12 millj. kr.

Mikil gagnrýni kom fram á flugmiðaskattinn á sínum tíma og hefur ríkisstjórnin nú ákveðið að hætta við þá skattheimtu. Frv. þess efnis er til meðferðar í samgn. Í frv. nokkurra þingmanna Samfylkingarinnar á 126. löggjafarþingi var lagt til að fella þetta gjald niður og er það frv. endurflutt á yfirstandandi þingi. Er þar enn fremur lagt til að flugmiðaskatturinn verði endurgreiddur til þeirra flugrekenda sem hafa greitt hann.

Minni hlutinn er á móti þessari skattlagningu á tæki til fólksflutninga og önnur samgöngutæki, og telur að atvinnugreinin greiði nú þegar nóg til ríkissjóðs af starfsemi sinni. Af þessum sökum getur minni hlutinn ekki stutt frv.

Eins og áður sagði, herra forseti, undirrita nál. auk þess sem hér stendur hv. þm. Lúðvík Bergvinsson og hv. þm. Jón Bjarnason.