Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 685  —  425. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


1. gr.

    6. gr. laganna orðast svo:
    Bátar sem fá leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum skulu frá og með 1. september 2001 stunda veiðar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Þessum bátum er einungis heimilt að stunda veiðar á tímabilinu 1. apríl til 31. október ár hvert. Þeim er einungis heimilt að stunda veiðar með handfærum. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til veiða á botndýrum og háffiskum með sérhæfðum veiðarfærum og til hrognkelsaveiða í net.
    Sameiginlegur viðmiðunarþorskafli báta sem stunda veiðar samkvæmt þessari grein skal á hverju fiskveiðiári vera 0,67% af leyfilegum heildarafla í þorski, að teknu tilliti til þeirrar aukningar sem leiðir af 5. mgr. a-liðar 7. gr. laga nr. 129 20. desember 2001. Leyfilegir sóknardagar í upphafi fiskveiðiársins 2001/2002 skulu vera 23. Fjöldi leyfilegra sóknardaga á fiskveiðiárunum þar á eftir skal ákveðinn fyrir hvert fiskveiðiár á grundvelli hlutfalls milli viðmiðunarþorskafla samkvæmt fyrsta málslið þessarar málsgreinar og raunafla sóknardagabáta í þorski á næstliðnu fiskveiðiári og skal sóknardögum fækka eða fjölga í sama hlutfalli. Sóknardögum hvers báts skal fækka eða fjölga um heila daga og sleppa broti. Sóknardögum skal þó aldrei fækka um meira en 10% milli fiskveiðiára.
    Sókn hvers báts skal reiknuð í heilum klukkustundum frá því að bátur lætur úr höfn til þess tíma er bátur kemur til hafnar. Hver hafin klukkustund telst heil klukkustund í þessu sambandi. Fiskistofa skal í eftirlitsskyni hafa aðgang að sjálfvirku tilkynningarkerfi íslenskra skipa, sbr. lög nr. 40 13. maí 1977, um tilkynningarskyldu íslenskra skipa, með síðari breytingum, en ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga og eftirlit með þeim. Utan sóknardaga eru allar veiðar bannaðar. Ráðherra getur þó heimilað að veiðar samkvæmt lokamálslið 1. mgr. séu utan sóknardaga.
    Heimilt er að flytja sóknardaga innan hvers fiskveiðiárs eða varanlega milli báta sem hafa leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum. Sé sá bátur sem sóknardagar eru fluttir til stærri, í brúttótonnum talið, en sá sem sóknardagar eru fluttir frá skal skerða flutta sóknardaga í hlutfalli við stærðarmun bátanna og sleppa broti. Á sama hátt skal skerða sóknardagafjölda báts sem er stækkaður. Óheimilt er að flytja hlutfallslega fleiri sóknardaga frá báti, umfram þá daga sem fluttir hafa verið til báts, en nemur hlutfallslegri nýtingu bátsins á úthlutuðum sóknardögum á fiskveiðiárunum 1996/1997 og 1997/1998. Í því sambandi skal miðað við meðaltal af sóknardaganýtingu fiskveiðiáranna. Séu sóknardagar fluttir frá báti skulu þeir sóknardagar sem báturinn hefur eftir flutninginn vera mismunur þess fjölda sóknardaga sem heimilt er að flytja frá bátnum og þeirra sem fluttir hafa verið, að teknu tilliti til sóknardaga sem fluttir hafa verið til bátsins. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning sóknardaga milli báta og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Ráðherra setur nánari reglur um flutning sóknardaga milli báta í eigu sömu aðila.
    Óheimilt er að veita bátum 6 brúttótonn eða stærri, sem ekki hafa haft leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum, leyfi til að stunda veiðar samkvæmt þessari grein. Þá er óheimilt að stækka bát sem hefur leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum þannig að hann verði 6 brúttótonn eða stærri.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í frumvarpi þessu er lagt til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á 6. gr. laga um stjórn fiskveiða, sem fjallar um fyrirkomulag veiða þeirra báta sem leyfi hafa til handfæraveiða með dagatakmörkunum:
     1.      Fallið verði frá því að sóknardögum fækki í 21 dag á fiskveiðiárinu 2001/2002 og verði sóknardagarnir 23 eins og þeir voru á fiskveiðiárinu 2000/2001. Í frumvarpinu er viðmiðunarþorskafli báta sem stunda veiðar samkvæmt þessari grein tilgreindur sem 0,67% af heildarafla í þorski, auk þeirrar aukningar sem leiðir af endurvali báta sem rétt eiga til slíks samkvæmt lögum sem samþykkt voru í desember 2001. Þegar núgildandi ákvæði var sett var ekki unnt að tilgreina viðmiðunarafla þessara báta nákvæmar en gert var. Gert er ráð fyrir að fjöldi sóknardaga á næstu árum ráðist síðan af afla þeirra með sama hætti og gildandi ákvæði kveður á um, en orðalaginu er breytt með hliðsjón af því að fjöldi sóknardaga hvers báts getur breyst bæði vegna flutnings sóknardaga milli báta og skerðingarákvæða laganna.
     2.      Reglum um nýtingu sóknardaga verði breytt þannig að sókn verði mæld í klukkustundum en ekki heilum dögum. Beiðni um slíka breytingu hefur ítrekað komið frá þeim sem stunda veiðar samkvæmt þessu kerfi og hafa þeir einkum rökstutt hana með því að slíkt fyrirkomulag leiddi til þess að sjómenn væru lengur að veiðum í vafasömu veðri þar sem hver róður teldist heill dagur. Þá hefur verið á það bent að þetta fyrirkomulag leiddi til mikils vinnuálags. Varðandi þetta atriði er lagt til í frumvarpinu að Fiskistofa hafi eftirlit með nýtingu sóknardaga um hið sjálfvirka tilkynningarkerfi en til þessa hefur eftirlit farið fram í gegnum svonefndan „símakrók“ sem Fiskistofa kom á í þessu skyni. Með því að veita Fiskistofu aðgang að hinu sjálfvirka tilkynningarkerfi er ljóst að eftirlit með veiðum þessara báta verður mun virkara en verið hefur til þessa.
     3.      Í gildandi ákvæði segir að séu sóknardagar fluttir milli báta skuli þeim fjölga eða fækka í hlutfalli við stærð bátanna. Í frumvarpi þessu er lagt til að sú breyting verði gerð að sóknardögum fjölgi ekki séu þeir fluttir á minni bát. Ástæða þess að þessi breyting er lögð til er sú að fjölgun sóknardaga með flutningi til báts sem mældur er minni í brúttótonnum en sá bátur sem flutt er af hefur vísast þær afleiðingar að við endurnýjun báta verði mjög reynt að mæla hina nýju báta sem minnsta. Þykir af ýmsum orsökum nauðsynlegt að sporna við slíkri þróun og þá sérstaklega þegar litið er til þess að skráð stærð í brúttótonnum segir ekki allt um veiðihæfni.
     4.      Að lokum skal þeirrar breytingar getið að í 3. mgr. er kveðið á um að ráðherra skuli setja reglur um flutning sóknardaga milli báta í eigu sömu aðila. Þykir nauðsynlegt að hafa slíka heimild. Að öðrum kosti gæti aðili sem við endurnýjun flytur daga milli báta sinna lent í því að sóknardagar hans skertust vegna ákvæða laganna, sem tengja heimild til flutnings sóknardaga nýtingu sóknardaga á tilteknum fiskveiðiárum.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/1990,
um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

    Tilgangur frumvarpsins er að leggja til breytingar á 6. gr. laganna um stjórn fiskveiða sem fjallar um fyrirkomulag veiða þeirra báta sem leyfi hafa til handfæraveiða með dagatakmörkunum.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.