Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 808  —  286. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 57 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

Frá sjávarútvegsnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneytinu, Jón Múla Jónasson og Guðmund Jóhannesson frá Fiskistofu og Sigurjón Arason frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
    Þá bárust nefndinni umsagnir frá Hafrannsóknastofnun, Samtökum fiskvinnslu án útgerðar, Þjóðhagsstofnun, Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandinu, Verslunarráði Íslands, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum atvinnulífsins og Landssambandi smábátaeigenda.
    Með frumvarpinu er lagt til að heimild núgildandi laga til að varpa fyrir borð afla sem er sýktur, selbitinn eða skemmdur á annan hátt verði felld brott. Þess í stað er lagt til að kveðið verði skýrt á um að hirða skuli og landa öllum afla sem kemur í veiðarfæri fiskiskipa. Ráðherra getur þó með reglugerð ákveðið að heimilt sé að varpa fyrir borð verðlausum fiski og innyflum, hausum og öðru því sem til fellur við verkun eða vinnslu um borð í fiskiskipum. Auk þessa er það nýmæli að finna í frumvarpinu að ráðherra er heimilt að ákveða að sýktur, selbitinn og skemmdur afli reiknist ekki til aflamarks skips. Frumvarpið gerir ráð fyrir að slíkum afla sé haldið aðgreindum frá öðrum afla og hann megi einungis nýta til bræðslu.
    Nefndin telur að þær breytingar sem hér eru lagðar til séu til þess fallnar að auðvelda allt eftirlit með brottkasti afla sem aftur ætti að draga úr því þegar fram í sækir.
    Nefndin leggur til tvær breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lagt til að orðið „sýktur“ í 3. efnismgr. 1. gr. verði fellt brott þar sem ekki þykir ástæða til að nefna sýktan fisk sérstaklega þar sem hann hlýtur að flokkast til skemmds afla. Í öðru er lagt til að óundanþægt ákvæði frumvarpsins um að aðeins sé heimilt að nýta selbitinn og skemmdan afla til bræðslu verði fellt brott en þess í stað verði ráðherra gert að setja reglur um leyfilega nýtingu aflans. Ekki þykir rétt að kveða á um að þessi afli skuli í öllum tilvikum bræddur þar sem verið getur að í sumum tilvikum megi nýta hann á arðbærari hátt.
    Nefndin fjallaði nokkuð um möguleika á vinnslu aukaafurða um borð í fiskiskipum. Nefndin hvetur til þess að áfram verði unnið að því að finna hagkvæmar leiðir til að nýta svokallaðar aukaafurðir um borð í fiskiskipum. Nokkuð hefur áunnist hvað þetta varðar og má t.d. nefna að útflutningsverðmæti þurrkaðra þorskhausa hefur aukist verulega á síðustu árum og ljóst að enn má gera betur ef markaðsaðstæður verða hagstæðar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali.
    
    Árni Steinar Jóhannsson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu með fyrirvara.

Alþingi, 13. febr. 2002.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Guðmundur Hallvarðsson.


Vilhjálmur Egilsson.



Helga Guðrún Jónasdóttir.


Jóhann Ársælsson,


    með fyrirvara.

Svanfríður Jónasdóttir,


með fyrirvara.

Guðjón A. Kristjánsson,


    með fyrirvara.