Ferill 675. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1203  —  675. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um aðild að alþjóðasamþykkt um viðmiðanir fyrir menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður áhafna fiskiskipa.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helgu Hauksdóttur frá utanríkisráðuneyti og Jón Bernódusson og Sverri Konráðsson frá Siglingastofnun Íslands.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til þess að Ísland gerist aðili að alþjóðasamþykkt um viðmiðanir fyrir menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður áhafna fiskiskipa (STCW-F) sem gerð var í Lundúnum 7. júlí 1995. Í samþykktinni eru ákvæði um lágmarksmenntun, þjálfun, skírteini og vaktstöður skipstjóra, stýrimanna, vélstjóra og fjarskiptamanna um borð í fiskiskipum sem eru 24 metrar að lengd eða meira.
    Aðild Íslands að samþykktinni kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur samgönguráðherra lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 76/2001, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa (þskj. 902, 575. mál), til að uppfylla ákvæði samþykktarinnar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. apríl 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Vilhjálmur Egilsson.


Þuríður Backman.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.