Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1205  —  683. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um aðild að samningi um að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir gegn öryggi í siglingum á sjó og bókun um að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir gegn öryggi botnfastra mannvirkja á landgrunninu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helgu Hauksdóttur frá utanríkisráðuneyti og Dís Sigurgeirsdóttur frá dómsmálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að Ísland gerist aðili að samningi um að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir gegn öryggi í siglingu á sjó og bókun við þann samning um að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir gegn öryggi botnfastra mannvirkja á landgrunninu, sem gerð voru í Róm 10. mars 1988. Samningurinn og bókunin eru meðal þeirra samninga sem Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sem hryðjuverkasamninga og hvatt ríki til að fullgilda í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september 2001.
    Samningurinn kallar á lagabreytingar hér á landi. Fyrir nefndina hefur verið lagt frumvarp dómsmálaráðherra til laga um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940 (þskj. 1094, 678. mál).
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. apríl 2002.



Sigríður A. Þórðardóttir,


form., frsm.


Rannveig Guðmundsdóttir.


Magnús Stefánsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Vilhjálmur Egilsson.


Þuríður Backman.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.