Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 21. janúar 2003 kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 10. janúar 2003.
Ólafur Ragnar Grímsson.
-------------------
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``
Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.