Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu. Það er alveg ljóst að öll forusta í málinu verður auðvitað á forræði Þingvallanefndar með atbeina forsætisráðuneytisins. En það er einnig eðlilegt að menntmrn. vegna UNESCO og umhvrn. vegna náttúru staðarins hafi hönd í bagga og komi að málinu eins og gert hefur verið og það er góður vilji hjá öllum þessum aðilum til að vinna saman að þessu verkefni og koma því í höfn.