Tóbaksvarnir

Fimmtudaginn 23. janúar 2003, kl. 10:31:35 (2946)

2003-01-23 10:31:35# 128. lþ. 64.4 fundur 415. mál: #A tóbaksvarnir# (EES-reglur) frv., heilbrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 128. lþ.

[10:31]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir. Í kjölfar gildistöku tilskipunar nr. 2001/37/EB var tóbaksvarnanefnd falið að semja drög að frv. vegna lögleiðingar tilskipunarinnar hér á landi. Tóbaksvarnanefnd skilaði ráðuneytinu drögum að frumvarpi í október 2001 en starfsmenn ráðuneytisins hafa unnið að endanlegri gerð í samráði við nefndina.

Í forsendum tilskipunarinnar er bent á nauðsyn þess að ryðja úr vegi viðskiptahindrunum á innri markaði sambandsins vegna mismunandi ákvæða í aðildarríkjunum um framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki. Þar er sagt að setja þurfi um þessi mál sameiginlegar reglur þar sem aðildarríkin geti við sérstakar aðstæður gert þær kröfur sem þau telja nauðsynlegar til að tryggja heilsuvernd.

Með tilskipuninni voru felldar úr gildi eldri tilskipanir sem einnig stefndu að samræmingu. Hin fyrri fjallaði um merkingu tóbaks, hin síðari um leyfilegt hámark tjöru sem sígarettur mega gefa frá sér. Nýja tilskipunin fjallar um hvort tveggja en tekur til mun víðara sviðs. Felur hún í sér í senn verulegar breytingar og veigamikil nýmæli.

Frv. miðar að því að samræma íslensk lög og stjórnsýslufyrirmæli þessari tilskipun en sum ákvæði hennar verða útfærð nánar í reglugerðum. Í október sl. var sett reglugerð um þau ákvæði tilskipunarinnar sem þegar hafa lagastoð þar sem um er að ræða nýjar ákvarðanir um viðvaranir um skaðsemi tóbaks og aðrar upplýsingar á tóbakspökkum. Fela þær m.a. í sér að reitir fyrir viðvaranir stækka mikið frá því sem nú er krafist og skýr fyrirmæli um hönnun og útlit þessara merkinga. Krafa um viðvörunarmerkingar er nú í 6. gr. laga nr. 6/2002, en þar er heilbr.- og trmrh. veitt heimild til að kveða nánar á um þær í reglugerð. Greininni er lítillega breytt í frv. til samræmingar. Fyrirhugað er að setja nýja reglugerð eftir gildistöku laga þessara þar sem settar verða nánari reglur um mælingar og hámark skaðlegra efna í tóbaki og kveðið á um hámark ekki aðeins á tjöru heldur einnig nikótíni og kolsýringi sem sígarettur gefa frá sér.

Í frv. er ákvæði sem lögleiðir bann við tilteknum heitum og táknum á umbúðum tóbaks sem gefa í skyn að varan sé ekki eins skaðleg og annað tóbak. Í frv. eru gerðar kröfur til framleiðenda varðandi upplýsingar til innihaldsefnis í tóbaki og lýsingar á vörunni. Krefja má þá eða innflytjendur um að gera ýmsar prófanir sem innlend yfirvöld kveða á um til þess að meta magn efna sem tóbak gefur frá sér og til að meta áhrif þeirra á heilsuna. Gert er skylt að krefja þessa aðila um skrá yfir öll innihaldsefni sem þeir nota við framleiðslu tóbaksvöru og því er ítarlega lýst hvernig sú skrá skuli úr garði gerð. Í frv. er heilbrigðisyfirvöldum heimilað að krefjast upplýsinga og rannsókna samkvæmt framansögðu.

Tilskipuninni í heild og lögleiðingu hennar hér á landi er ætlað að efla tóbaksvarnir.

Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu eru:

Merkja skal sígarettupakka með upplýsingum um hve mikinn kolsýring hver sígaretta gefur frá sér, til viðbótar við slíkar upplýsingar um tjöru og nikótín.

Bannað er frá og með 30. september 2003 að hafa á umbúðum tóbaks heiti, vörumerki og annars konar texta eða tákn sem gefa í skyn að varan sé ekki eins skaðleg og annað tóbak.

Tóbaksframleiðendum og -innflytjendum er gert skylt að veita heilbrigðisyfirvöldum upplýsingar um efnainnihald tóbaks svo sem þau mæla fyrir um.

Tóbaksframleiðendum og -innflytjendum er gert skylt að leggja fram sýnishorn af vörunni eða gera rannsóknir sem heilbrigðisyfirvöld krefja þau um og eru nauðsynlegar til að meta eiginleika og áhrif hennar.

Tóbaksframleiðendum er gert skylt að standa straum af kostnaði við upplýsingar um efnainnihald tóbaks og rannsóknir á því.

Herra forseti. Ég hef farið lauslega yfir aðdragandanda þess að ég legg fram frv. til laga um breytingu á lögum um tóbaksvarnir. Ég tel mikilvægt að frv. þetta nái fram að ganga á þessu þingi og leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og trn.