Álverksmiðja í Reyðarfirði

Þriðjudaginn 28. janúar 2003, kl. 18:38:46 (3118)

2003-01-28 18:38:46# 128. lþ. 66.10 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 128. lþ.

[18:38]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það sé alveg rétt að afstaða Samfylkingarinnar hafi komið fram þá, að hún liti á virkjunina sem heppilega umgjörð fyrir þjóðgarð, og flutti reyndar tillögu um það efni. Ég spurði hins vegar beinnar spurningar. Fyrir Alþingi liggur tillaga um að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um þessar framkvæmdir. Og ég óska eftir því að þingmaðurinn svari því beint út: Mun hann styðja þá tillögu?