Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):
Um klukkan hálffjögur síðdegis fer fram umræða utan dagskrár um upplýsingaskyldu stjórna hlutafélaga um starfslokasamninga og fleiri sambærilega samninga. Málshefjandi er hv. þm. Lúðvík Bergvinsson. Hæstv. viðskrh. Valgerður Sverrisdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.
Þá vill forseti geta þess að atkvæðagreiðslur verða um klukkan fjögur í dag.