Þjónustugjald á fjölsóttum náttúruverndarsvæðum

Fimmtudaginn 06. febrúar 2003, kl. 19:03:56 (3640)

2003-02-06 19:03:56# 128. lþ. 74.20 fundur 142. mál: #A þjónustugjald á fjölsóttum náttúruverndarsvæðum# þál., ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 128. lþ.

[19:03]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Upptalningin hv. þm. var góð á þeim samtökum sem hv. þm. nefndi að væru samþykk þessari tillögu. En það er greinilegt að þátttakendur í þessari umræðu eru ósammála þeirri upptalningu.

En umræðan er góð og mér þótti sérstaklega vænt um það þegar hv. þm. sagði áðan að tillagan væri fyrst og fremst fólgin í því að vekja umræðu hér í þinginu og svo sannarlega hefur verið fjörleg umræða um tillöguna.