Álverksmiðja í Reyðarfirði

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 16:08:23 (4286)

2003-03-03 16:08:23# 128. lþ. 86.6 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv. 12/2003, iðnrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[16:08]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með að komið er að lokum 2. umr. með þessari atkvgr. sem nú fer fram. 3. umr. er eftir en það er ánægjulegt að 1. gr. er samþykkt með 46:8 atkv. Þetta mál nýtur mikils stuðnings á hv. Alþingi enda er það mál þaulunnið af þingnefnd. Ég vil nota tækifærið til að þakka þingnefndinni fyrir ákaflega vel unnin störf.