Nýting innlends trjáviðar

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 11:48:28 (4586)

2003-03-10 11:48:28# 128. lþ. 93.24 fundur 154. mál: #A nýting innlends trjáviðar# þál. 16/128, Frsm. DrH
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[11:48]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá landbn. um till. til þál. um nýtingu innlends trjáviðar, en flutningsmaður tillögunnar er Ísólfur Gylfi Pálmason.

Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá hlunnindaráðunaut Bændasamtaka Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Hagþjónustu landbúnaðarins, Suðurlandsskógum, Skógrækt ríkisins og Norðurlandsskógum.

Tillagan felur í sér áskorun til landbúnaðarráðherra um að kanna möguleika á að nýta innlendan trjávið, sem fellur til við grisjun, til framleiðslu listmuna, byggingarefnis, límtrés eða eldiviðar, jafnframt að gerð verði fagleg úttekt á því hvernig fullnýta megi þau verðmæti sem til falla í skógum landsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Í stað orðanna ,,skora á`` í fyrri málslið tillögugreinarinnar komi: fela.

Sigríður Jóhannesdóttir, Guðjón Guðmundsson, Jónína Bjartmarz og Einar Oddur Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita Drífa Hjartardóttir formaður, Kristinn H. Gunnarsson, Karl V. Matthíasson, Þuríður Backman og Sigríður Ingvarsdóttir.