2003-03-15 02:42:52# 128. lþ. 102.39 fundur 689. mál: #A skógrækt 2004--2008# þál. 39/128, GuðjG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 128. lþ.

[26:42]

Guðjón Guðmundsson:

Herra forseti. Ekki hef ég á móti því að gera vel við skógræktina í landinu nema síður væri. Ég er mjög hlynntur því að gera vel við hana á Alþingi en mér finnst út í hött að samþykkja á síðasta fundi Alþingis á þessu kjörtímabili milljarða útgjöld til þessa verkefnis með þáltill., útgjöld sem eiga sér enga stoð í fjárlögum og tillögu sem fékk enga umfjöllun í landbn. þar sem hún kom fyrst fram fyrir örfáum dögum. Ég segi bara við hæstv. landbrh.: Svona gerir maður ekki.