Árni Steinar Jóhannsson:
Virðulegi forseti. Ég vil bara fagna þeim upplýsingum sem hæstv. sjútvrh. gaf þinginu hér áðan um aðild okkar að Alþjóðahvalveiðiráðinu á nýjan leik. Ég sé ástæðu til að þakka hæstv. ráðherra og starfsfólki hans fyrir vel unnin störf í þessu máli. Þetta hefur haft töluverðan aðdraganda og hefur verið mikið verk og krafist mikilla fundahalda. Ég vil aðeins að það komi fram.