Áfengislög

Þriðjudaginn 15. október 2002, kl. 17:29:58 (571)

2002-10-15 17:29:58# 128. lþ. 10.11 fundur 23. mál: #A áfengislög# (framleiðsla innlendra léttvína) frv., Flm. GAK
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 128. lþ.

[17:29]

Flm. (Guðjón A. Kristjánsson):

Herra forseti. Ég þakka undirtektir hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur við þetta mál og vona eins og hv. þm. að það fái hér eðlilegan framgang. Þó hv. þm. Framsfl. hafi ekki viljað ljá þessu máli lið geri ég mér fastlega vonir um að þeir verði ekki til þess að bregða fæti fyrir það heldur. Ég tel að þeir hafi þroskast mikið á undanförnum árum.