Alþjóðasamningur um verndun túnfiska í Atlantshafi

Þriðjudaginn 29. október 2002, kl. 13:52:52 (725)

2002-10-29 13:52:52# 128. lþ. 15.7 fundur 243. mál: #A alþjóðasamningur um verndun túnfiska í Atlantshafi# þál., landbrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 128. lþ.

[13:52]

Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þann góða skilning sem hann hefur á málinu og þann mikilvæga stuðning sem hann lýsir yfir við það. Ég held að þá sé ástæðulaust að skattyrðast meira um sögu málsins en ganga heldur til þess sem mikilvægast er, að klára það.