Búnaðarlög

Þriðjudaginn 29. október 2002, kl. 14:22:14 (733)

2002-10-29 14:22:14# 128. lþ. 15.8 fundur 241. mál: #A búnaðarlög# (erfðanefnd) frv., landbrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 128. lþ.

[14:22]

Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á búnaðarlögum, nr. 70/1998. Frumvarpið er flutt á þskj. 245 og er mál nr. 241 á þessu þingi.

Á undanförnum áratugum hefur orðið mikil vakning að því er varðar varðveislu þeirra verðmæta sem fólgin eru í fjölbreytileika náttúrunnar. Hér á landi hófst skipulegt starf á þessu sviði með stofnun erfðanefndar búfjár samkvæmt lögum um búfjárrækt, nr. 84/1989. Núverandi erfðanefnd er skipuð samkvæmt ákvæðum 16. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, og eiga sæti í henni fulltrúar frá Bændasamtökum Íslands, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Náttúrufræðistofnun Íslands og Veiðimálastofnun. Nefndinni er ætlað að fylgjast með og halda skrá um erfðabreytileika og þróun hans í helstu búfjárstofnum og ferskvatnsfiskum og gera tillögur til landbrh. um verndun tegunda og stofna í útrýmingarhættu.

Sérstaða Íslands er veruleg í þessu efni þar sem stór hluti þess plöntuerfðaefnis sem hér er notað í ræktun er af útlendum uppruna. Búfjárræktin byggist hins vegar að miklu leyti á gömlum búfjárkynjum sem eru sérstæð í hópi framleiðslukynja.

Með frv. því sem hér er flutt er lagt til að gerð verði breyting á ákvæðum 16. gr. búnaðarlaga um erfðanefnd búfjár, og hlutverki nefndarinnar breytt þannig að hún fjalli um allar erfðalindir í landbúnaði. Samkvæmt gildandi ákvæðum hefur erfðanefndin, sem fyrr segir, einungis verið að gera erfðalindir í búfé og vatnafiskum. Breytingin felur það í sér að nefndin fjalli einnig um erfðalindir í nytjaplöntum og trjám. Þær breytingar sem hér um ræðir eru í samræmi við alþjóðlegar og norrænar skuldbindingar Íslendinga.

Helstu verkefni nefndarinnar skulu vera:

a. að annast samráð innan lands um varðveislu erfðalinda í landbúnaði,

b. að hvetja til rannsókna á sviði erfðalinda í landbúnaði,

c. að stuðla að miðlun þekkingar um erfðalindir og gildi þeirra, jafnt með kennslu sem upplýsingagjöf til almennings,

d. að veita hagsmunaaðilum og stjórnvöldum ráðgjöf um varðveislu og nýtingu erfðalinda í landbúnaði,

e. að annast samskipti við erlenda aðila á þessu sviði í samstarfi við tengiliði Íslands hjá alþjóðastofnunum.

Hæstv. forseti. Frv. gerir ráð fyrir að landbrh. setji reglugerð þar sem nánar yrði kveðið á um verkefni nefndarinnar.

Með skilgreiningunni nytjajurtir og tré er átt við jurtir og tré sem notuð eru í ræktun hér á landi en ekki villtar jurtir og tré. Hafa ber í huga í þessu sambandi að breytingar geta orðið á því hvaða jurtir og tré eru skilgreind sem villt. Til dæmis eru tilraunir nú hafnar með ræktun ýmissa villtra jurta, svo sem hvannar og vallhumals, til nota í fæðubótarefni og lyf. Ef slíkar tilraunir skila góðum árangri mundu þessar ræktuðu jurtir flokkast undir nytjajurtir í skilningi laganna.

Í samræmi við þessar breytingar á hlutverki erfðanefndar er lagt til að fjölgað verði í erfðanefnd úr fimm í sjö og hana skipi fulltrúar tilnefndir af Bændasamtökum Íslands, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Skógrækt ríkisins, Veiðimálastofnun og umhvrn. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar.

Hæstv. forseti. Það frv. sem hér er flutt er afrakstur af starfi nefndar sem ég skipaði 9. febr. 2001 til að gera tillögur um hvernig innlendri forsjá erfðalinda í húsdýrum, ferskvatnsfiskum, nytjaplöntum og skógrækt skyldi háttað. Verði frv. að lögum mun ég fela nefndinni að vinna áfram og semja drög að reglugerð til nánari útfærslu á ákvæðum þess.

Frv. þetta var áður lagt fram á 127. löggjafarþingi en hlaut þá ekki afgreiðslu. Mikilvægt er að mál þetta fái greiðan framgang hér á hv. Alþingi. Hafa þarf í huga að ör þróun er í þeim málum sem hér um ræðir. Mönnum verður æ betur ljóst hversu mikil verðmæti eru fólgin í erfðaeiginleikum dýra og plantna. Það á ekki síst við um húsdýr okkar og plöntur sem svo lengi hafa lifað við einangrun.

Á vettvangi norrænnar samvinnu hafa þessi mál verið mjög til umræðu á síðustu missirum og mikill áhugi á því að efla samvinnu á þessu sviði. Í þessum efnum höfum við Íslendingar mikið fram að leggja en til að við getum sinnt skyldum okkar í því samhengi er nauðsynlegt að breyta fyrirkomulagi þessara mála á þann hátt sem frv. gerir ráð fyrir.

Hæstv. forseti. Að svo mæltu legg ég til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. landbn. og 2. umr.