Verðmyndun á innfluttu sementi

Þriðjudaginn 05. nóvember 2002, kl. 18:02:37 (1096)

2002-11-05 18:02:37# 128. lþ. 22.9 fundur 32. mál: #A verðmyndun á innfluttu sementi# þál., 133. mál: #A framtíðarhlutverk Sementsverksmiðjunnar hf.# þál., JÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 128. lþ.

[18:02]

Jóhann Ársælsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið.

Ég tel hins vegar og vona þá að þeir sem reka það innflutningsfyrirtæki sem er að selja hér á markaðnum geri sér grein fyrir því að þetta er afstaða stjórnvalda á Íslandi. Ég held að mjög mikilvægt sé að þeir viti það og skilji að þeim muni ekki takast, þó þeir geri aðför að þessari verksmiðju, að koma samkeppni við sig fyrir kattarnef. Það er að mínu viti það sem er verið að reyna hér með því verði sem hefur verið uppi á sementsmarkaðnum.

En eins og ég sagði áðan þá er mikilvægt að menn viti að það muni ekki takast.