Þjóðminjalög

Þriðjudaginn 26. nóvember 2002, kl. 15:32:02 (1719)

2002-11-26 15:32:02# 128. lþ. 36.3 fundur 382. mál: #A þjóðminjalög# (verkaskipting, minjaverðir o.fl.) frv., KolH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 128. lþ.

[15:32]

Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil einungis fagna því sem hæstv. ráðherra segir að nú sjái fyrir endann á endurbyggingarmálum eða viðhaldsmálum Þjóðminjasafnsins og lýsi mig fullkomlega reiðubúna til þess að taka þátt í þeim lokahnykk sem þarf til að setja á það mál. Ég verð að lýsa því yfir að ég hlakka mikið til að fá að heyra það úr munni hæstv. ráðherra hvenær Þjóðminjasafnið verður opnað.