Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Hér er lagt fram frv. til laga um breyting á safnalögum sem voru samþykkt árið 2001. Við yfirferð á þessu frv. og athugasemdum við það finnst mér vera um að ræða sjálfsagðar breytingar sem ég lít svo á að nefndin muni samþykkja innan tíðar.