Tekjustofnar sveitarfélaga

Föstudaginn 06. desember 2002, kl. 13:57:00 (2324)

2002-12-06 13:57:00# 128. lþ. 48.6 fundur 441. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (Jöfnunarsjóður) frv. 167/2002, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.

[13:57]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. En það var ein spurning sem ég spurði sem ég fékk ekki svör við og það er í sambandi við verkefnatilflutninginn og það sem ekki var upp gert varðandi hann í þessu samkomulagi, og sérstaklega kannski það sem snýr að framhaldsskólunum. Getur hæstv. ráðherra upplýst okkur um það hvenær gengið verði frá því?

Ég held að ég hafi fengið svör við öðrum spurningum. Reyndar var það sem ég spurði um áðan um sveitarfélögin, hvort þau væru jafnsett, þá átti ég nú við hvort þau væru jafnsett eins og þau voru fyrir þetta samkomulag. En það skiptir svo sem ekki máli, ég mun vonandi fá svar við því í nefndinni.