Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
Þetta frv. er fyrst og fremst tæknilegs eðlis og snýst um að trygging haldist óbreytt meðan lokunarferli stendur yfir hjá fjármálastofnunum. Nefndin gerir tillögu um að frv. verði samþykkt óbreytt.