Úrvinnslugjald

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 20:01:01 (2637)

2002-12-12 20:01:01# 128. lþ. 55.18 fundur 337. mál: #A úrvinnslugjald# frv. 162/2002, Frsm. meiri hluta MS
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 128. lþ.

[20:01]

Frsm. meiri hluta umhvrn. (Magnús Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um úrvinnslugjald frá meiri hluta umhvn.

Nefndin fékk á sinn fund nokkra gesti og leitaði umsagna frá ýmsum aðilum.

Frv. var samið af nefnd sem umhvrh. skipaði fyrr á þessu ári til að vinna að frv. um gjaldtöku vegna úrvinnslugjalds, spilliefnagjalds og skilagjalds og um skipulag og framkvæmd gjaldtökunnar. Gerir það ráð fyrir að við innflutning eða framleiðslu vöru sem fellur undir frv. verði lagt úrvinnslugjald á viðkomandi vöru áður en hún fer á markað. Er markmiðið að gjaldið standi undir kostnaði sem fellur til við úrvinnslu þess úrgangs sem af viðkomandi vöru leiðir, þ.e. vegna meðhöndlunar hans á söfnunarstöð, flutnings hans þaðan á móttökustöð eða til endurnýtingarstöðvar. Gjaldið skal einnig standa undir endurnýtingu úrgangsins, förgun eða greiðslu skilagjalds eftir því sem við á.

Í frv. er sá háttur hafður á að einstakir vöruflokkar eru ekki skilgreindir sérstaklega, heldur er tollskrárnúmer viðkomandi vöru tiltekið í viðaukum með frv. Var rætt um hvort slíkt fyrirkomulag væri hentugt. Bent var á að það gæti reynst þungt og seinvirkt og aðrar leiðir hugsanlega einfaldari. Má nefna þá leið að leggja á úrvinnslugjald, sem væri tiltölulega lágt, á mjög breiðan gjaldstofn. Þar sem hér væri um skatt að ræða en ekki þjónustugjald væri ekki þörf á að tengja ráðstöfun skattsins eins nákvæmlega við þá vöru sem skatturinn væri greiddur af. Hins vegar var bent á að með því að aðgreina gjaldið eftir flokkum væri auðvelt að sjá kostnað af úrvinnslu hverrar vöru og hafa gjaldtökuna í samræmi við kostnað af henni og er meiri hluti nefndarinnar sammála því að fara þá leið.

Þá var mikið rætt um hvaða vöruflokkar ættu að vera gjaldskyldir. Var m.a. bent á að ákveðnir vöruflokkar sem nú eru endurunnir eru ekki felldir undir frv., t.d. dagblaðapappír, kælitæki, fatnaður og ýmsar vörur sem notaðar eru í sjávarútvegi. Við umfjöllun málsins kom fram að einkum væri miðað við vörur sem tilskipanir Evrópusambandsins taka til. Meiri hlutinn leggur til að veiðarfæri úr gerviefnum verði einn af þeim vöruflokkum sem lagt verði úrvinnslugjald á og að sú gjaldtaka hefjist 1. janúar 2004. Telur meiri hlutinn eðlilegt að veiðarfæri verði einn af vöruflokkunum sem falli undir lögin. Úrvinnslusjóði er því falið að undirbúa tillögu þessa efnis og leggja fyrir umhvrh. svo að gjaldtakan geti verið tilbúin fyrir tilsett tímamörk. Meiri hlutinn gerir ekki aðrar tillögur að gjaldtöku að sinni en hann lítur svo á að með frv. sé verið að setja ákveðna umgjörð um þessi mál. Þau eigi eftir að þróast auk þess sem gert er ráð fyrir því í frv. að fleiri vöruflokkar bætist við með tíð og tíma.

Frv. gerir ráð fyrir að ný stofnun, Úrvinnslusjóður, verði sett á fót. Jafnframt verður spilliefnanefnd lögð niður. Hlutverk Úrvinnslusjóðs verður að hafa umsýslu með úrvinnslugjaldi. Um framkvæmd úrvinnslu vörunnar verður hins vegar samið við aðra. Fulltrúar umhvrn. greindu frá því að skoðað hefði verið í hvaða formi starfsemi Úrvinnslusjóðs ætti að vera, hvort það ætti að vera ríkisstofnun, hlutafélag o.s.frv. Niðurstaðan var að setja á fót sérstaka ríkisstofnun. Það sem vó hvað þyngst var að hugsanlegt er að gjöld verði hærri en tekjur í rekstri stofnunarinnar. Í 2. mgr. 19. gr. er sú skylda lögð á ríkissjóð að gæta að því að sjóðurinn hafi nægilegt laust fé til ráðstöfunar til að standa við skuldbindingar sínar og því talið eðlilegt að Úrvinnslusjóður verði ríkisstofnun. Við umfjöllun nefndarinnar komu fram ýmis sjónarmið um hverjir ættu að skipa stjórn sjóðsins. Frv. gerir ráð fyrir að atvinnulífið tilnefni þrjá fulltrúa, einn fulltrúi verði tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og að umhvrh. skipi formann stjórnar án tilnefningar.

Í athugasemdum með frv. er tekið fram að þeir vöruflokkar sem frv. tekur til séu hugsaðir sem fyrsta skref til að draga úr magni úrgangs. Meiri hluti nefndarmanna tekur undir það og telur að hér sé um mikilvægt mál að ræða sem rétt sé að fái framgang enda hefur komið fram við umfjöllun um málið að viðhorf viðmælenda og umsagnaraðila til frv. er almennt jákvætt.

Meiri hlutinn leggur til ýmsar breytingar á frv. og vil ég hér fara yfir þær helstu:

Gert er ráð fyrir að vöruflokkum verði skipt í uppgjörsflokka með reglugerð þar sem tilgreint verður nákvæmlega hvaða vöruflokkar verða í viðkomandi uppgjörsflokki. Ætti það að sýna hvernig viðkomandi úrvinnslugjaldi er ráðstafað gagnvart uppgjöri.

Lagðar eru til breytingar á 5. gr. til að taka af öll tvímæli um frá hvaða tíma gjaldskylda fellur niður af bifreiðum.

Breyting á 9. gr. er lögð til svo að tryggt verði að allir þeir aðilar sem flytja til landsins vörur sem bera úrvinnslugjald samkvæmt frv., hvort sem þeir eru skráðir á vörugjaldsskrá eða ekki, séu gjaldskyldir aðilar.

Við 11. gr. Í 5. mgr. 7. gr. laga um spilliefnagjald, nr. 56/1996, er innlendum framleiðendum sem keypt hafa aðföng til gjaldskyldrar framleiðslu sinnar og greitt af því úrvinnslugjald heimilað að draga það frá við endanleg skil gjaldsins. Nefndin leggur til að þessi regla gildi áfram og að samsvarandi grein verði bætt inn í frv.

Nefndin leggur til að gjaldtöku á heyrúlluplast verði frestað um eitt ár frá því sem gert er ráð fyrir í frv. og hefjist 1. janúar 2004. Gjaldtakan mun þá hefjast um leið og gjaldtaka hefst á pappírs-, pappa- og plastumbúðum og veiðarfærum úr gerviefnum. Bent hefur verið á að ekki er til staðar neinn hvati fyrir notendur heyrúlluplasts, þ.e. bændur, til að skila því eftir notkun. Bændasamtök Íslands hafa hins vegar lýst sig reiðubúin til samstarfs um að byggja upp hagkvæmt kerfi til söfnunar og eyðingar eða endurvinnslu plastsins. Þau telja samt sem áður að það krefjist verulegs undirbúnings og tíminn sem frv. gerir ráð fyrir til þess sé of skammur. Nefndin telur eðlilegt að koma til móts við þessar óskir.

Meiri hlutinn mælir með samþykkt frv. með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Að þessu nál. standa Magnús Stefánsson, Ásta Möller með fyrirvara, Ísólfur Gylfi Pálmason, Kolbrún Halldórsdóttir með fyrirvara og Kristján Pálsson.